|
Stefna Samherja er að framleiða matvæli sem uppfylla ýtrustu væntingar og kröfur viðskiptavina fyrirtækisins, mæta kröfum sem gerðar eru af hálfu opinberra aðila og uppfylla ávallt öll ákvæði sem getið er um í sölusamningum. Í þeim tilgangi tileinkar fyrirtækið sér ýmsar tækninýjungar á hverjum tíma en leggur umfram allt mikla áherslu á gæði og afhendingaröryggi.
Umhverfisstefna
Samherji hefur það að markmiði að starfa í sem bestri sátt við umhverfi sitt, stuðla að sjálfbærri nýtingu fiskistofna og góðri umgengni um auðlindina. Stefna Samherja er að hámarka nýtingu á hráefnum og orku. Markvisst er stefnt að því að auka notkun umhverfisvænnar orku, stuðla að umhverfisvænum rekstri á öllum stigum framleiðslunnar og að framleiða heilnæmar gæðaafurðir.