Samherji

Samherji hf. er í hópi umsvifamestu sjávarútvegsfyrirtækja landsins, með höfuðstöðvar á Akureyri. Rekstur Samherja byggist á útgerð, sjófrystingu, landvinnslu á bolfiski, rækjuvinnslu, fiskeldi og sölustarfssemi. Samherji rekur einnig útgerð, fiskvinnslu og sölu sjávarafurða í Þýskalandi, Póllandi, Bretlandi, Færeyjum, Kanaríeyjum, Máritaníu og Marokkó.

fimmtudagur 29. júlí 2010 17:10

Uppskriftir

Uppskriftir fyrir bleikju eftir Einar Geirsson á Karolínu 

Allar uppskriftirnar eru fyrir 4 persónur


Forréttur
Bleikju tartar
 
400 gr bleikja (skorin í fína bita)
2 stk skarlottulaukar (saxaður)
1 msk graslaukur (saxaður)
3 msk ferskur ananas (skorinn í fína bita)
3 msk agúrka (skorin í fína bita)
2 msk papríka (skorin í fína bita
1-2 msk ólífuolía
2-3 msk sæt chillísósa
1 st lime (safi)
Salt og pipar 

Blandið öllu saman og kryddið með salti og pipar. Berið fram með avocado sneiðum, sýrðum rjóma og ristuðu brauði

 

arctic_charr_2_mynd_400

Forréttur
Bleikja sashimi
 
400 gr bleikju flök 
Japönsk soya sósa
Piklaður engifer
Wasabi 

Hreinsið bleikjuna, skerið í þunnar sneiðar og berið fram með soya sósu, engifer og wasabi.
 





 

arctic_charr_5_mynd_400 

Forréttur/smáréttur
Soya-steikt bleikja með hvítkálssalati 
400 gr bleikja
1 dl soya (kikkoman)
150 gr hvítkál (skorið í fína strimla)
2 st vorlaukur (skorinn í sneiðar)
½ msk ferskur koriander (fint saxaður)
1 st hvítlauksgeiri (fínt saxaður)
Safi úr ½  lime
200 gr sýrður rjómi
Salt og pipar 

Hrærið saman sýrðum rjóma og lime safa, bætið út í hvítkáli, lauk og koriander og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Skerið bleikjuna í ca 50 gr bita og steikið á roðhliðinni í 3-4 mín, bætið þá soya á pönnuna og látið krauma í ½ mín. Snúið þá fiskinum við og takið pönnuna af hitanum og berið fram með hvítkálssalatinu.

 arctic_charr_7_mynd_400

 

 


Forréttur/aðalréttur
Volgt bleikju salat
400/800 gr bleikju flök

Blönduð salatlauf
Kalamata ólífur í olíu úr krukku
Grillaðir ætiþistlar í olíu úr krukku
Sherry tómatar
Ristaðar furuhnetur
Rifinn ferskur parmesan
Sítrónu olía
Maldon salt
Pipar úr kvörn

Setjið bleikjuna í eldfast mót, penslið með sítrónuolíu og bakið í 160°c heitum ofni í 5-7 mín. Skafið bleikjuna af roðinu með skeið. Blandið saman salati, ólífum, ætiþistlum, furuhnetum og parmesanosti. Setjið salatið á disk ásamt bleikjunni og notið sítrónu olíu sem dressingu og kryddið með maldon salti og pipar úr kvörn.
 



 arctic_charr_4_mynd_400

 

 

 

 

Aðalréttur
Grilluð bleikja með barbecue og tómat-kartöflusalati
 
800 gr bleikja
Barbecue sósa (t.d hunts-hickory&brown sugar)
400 gr litlar kartöflur
200 gr sherry tómatar (skornir í báta)
1 st papríka (skorin í fina bita)
1 st rauðlaukur (fint saxaður)
½ haus fennel (skorinn í fínar sneiðar)
4-5 st hvítlaukslauf (fínt söxuð)
1 búnt basilika (skorin í fína strimla)
1 dl sítrónuolía
Safi úr einni sítrónu
Salt og pipar 

Hitið grillið, grillið kartöflunar á efri grind í ca 30 mín eða þar til þær eru full eldaðar.
Skerið þá kartöflurnar í báta og blandið saman við grænmetið, laukinn, basilikuna og sítrónuolíuna, kreistið sítrónusafann yfir og kryddið með salti og pipar. Grillið bleikjuna á kjöthliðinni í 3-4 mín, snúið henni þá við og penslið hana með bbq og grillið í 1 mín á roðinnu, snúið þá fisknum aftur á kjöthliðina í ½  mín og þá ætti hann að vera tilbúinn. ( ath eldunartíminn fer að sjálfsögðu eftir stærð fiskstykkjanna ).     



arctic_charr_8_mynd_400



 

 

 

 

 

 

 


Aðalréttur

Ofnbökuð bleikja í kryddhjúp með blómkálsmauki og salati

Blómkálsmauk
 
400 gr blómkál
3 dl rjómi
1 dl hvítvín
Salt og pipar 
Skerið blómkálið í litla bita og sjóðið í rjóma og hvítvíni í 20 mín, setjið í matvinnsluvél og maukið vel. Kryddið með salti og pipar. 

Kryddolía
 
1 búnt steinselja
1 búnt basilika
½ búnt koriander
2-3 hvítlaukslauf
2,5 dl ólífuolía
½  msk sítrónusafi 
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel 

Bleikja
 
800 gr bleikjuflök
brauðrasp
kryddolía
maldon salt
grófmalaður pipar

Skerið bleikjuna í ca 100 gr bita og setjið í ofnskúffu.  Penslið fiskinn með kryddolíunni, geymið afganginn af kryddolíunni og notið sem dressingu með fiskinum, stráið brauðraspi yfir, kryddið með salti og pipar. Setjið fiskinn í 160°c
heitann ofninn og bakið í 6-8 mín. Berið fram með volgu blómkálsmauki, ykkar salati og kryddolíu.

 arctic_charr_6_mynd_400

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Aðalréttur
Bleikja soðin í kryddsoði með grænmeti
800 gr bleikju flök
8 stk skarlottulaukur
1 stk hvítlaukur
½ chillí pipar
4-6 stk vorlaukur
12 stk mini aspas
½ haus fennel
2 msk söxuð steinselja
4 msk söxuð basilika
2 bollar hvítvín
2 bollar vatn
Safi úr 1 lime
1 msk maldon salt
Pipar

Skerið bleikjuna í bita og setjið í pott. Hreinsið grænmetið, skerið í bita og bætið í pottinn ásamt steinseljunni, basilikunni, hvítvíni, vatni og lime safa, kryddið með salti og pipar. Lokið pottinum og látið suðunna koma upp, takið hann þá af hellunni og látið standa í 3-5 mín. Berið fram í pottinum ásamt soðnum kartöflum.
 
 

 arctic_charr_3_mynd_400

 

 

 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning