Uppskriftir frá Einari Geirssyni á Karolínu Resturant á Akureyri
| Febrúar 2008: | |
| Þorskhnakki með ansjósumauki, parmaskinku og basilikum smjörsósu | |
| Fyrir 4 800 gr þorskhnakki 100 gr ansjósur 1 msk hvítlauksolía 25 gr brauðrasp 10 gr steinselja 8-10 sneiðar parmaskinka Salt og pipar | Þorskhnakkarnir eru skornir í u.m.þ 200 gr bita og kryddaður með salti og pipar. Ansjósurnar eru settar í matvinsluvél ásamt hvítlaksolíu, brauðrasp og steinselju og maukað í þéttan massa, parmaskinkan er lögð á bretti og smurð með ansjósumaukinnu og síðan vafinn utanum þorskinn, þá eru þorskbitarnir settir í eldfastmót og bakaðir í ofni við 160c í u.m.þ 10 mín |
| Basilikum | smjörsósa |
| 2-3 skarlottulaukar 1-2 hvítlaukslauf 1 búnt basilika ½ l fisksoð (vatn+kraftur) 1-2 dl rjómi 200 gr smjör Salt og pipar | Skarlottulaukurinn og hvítlaukurinn eru skornir í bita og svissaðir í potti, basilikum blöðin eru tekin af stilkunum og geymd til síðar en stilkunum er bætt í pottinn ásamt fisksoðinu og soðið í 10-15 mín. Þá er sósan sigtuð í annan pott og rjómanum bætt í og soðið þangað til sósan fer að þykkna. Þá er basilikum blöðunum bætt í, maukað með töfrasprota og sósan tekin af hellunni, smjörið skorið í bita og bætt í sósuna bita fyrir bita og hrært stöðugt í pottinum á meðan, sósan smökkuð til með salti og pipar. |
| Nóvember 2007: Forréttir Djúpsteiktur bleikjutartar með chillí eplum Fyrir 4. | |
| 400 gr beikja (roðlaus og beinhreinsuð) 3-4 stk skarlottulaukur 1 msk kapers 2 msk safi úr lime 2 msk jómfrúar olía Salt og pipar 2 stk egg 3-4 msk vatn 200 gr brauðrasp | Bleikjan er skorin í fína teninga, laukurinn og kapers er fint saxað og blandað saman við ásamt lime safanum og olíunni kryddað með salt og pipar eftir smekk. Eggin eru sett í skál og pískuð létt með vatninu, brauðraspið sett í aðra skál. Þá er bleikjutartarinn mótaður í kúlur milli handanna, dýft í eggin og síðan vellt uppúr brauðraspinu, endurtekið 1 sinni til viðbótar. Síðan eru kúlurnar djúpsteiktar við 180C í ca 30 sek. |
| Chillí epli 1 stk grænt epli 1-2 tsk safi úr lime 1 msk sítrónu olía 1 tsk rautt chillí paste | Eplin eru afhýdd og kjarn hreinsuð, skorin í fína teninga, lime safa, olíu og chillí paste blandað saman við . Með þessum rétti er gott að hafa ferskt salat og sæta soya sósu (ketjup manis) |