Íslandsbleikja er stærsti framleiðandi bleikju í heimi. Íslandsbleikja sérhæfir sig í framleiðslu á bleikju, allt frá hrognum til fullunninna flaka, og er félagið með starfsstöðvar á Stað í Grindavík, Vatnsleysu á Reykjanesi, Öxnalæk í Ölfusi auk fullkominnar vinnslu fyrir bleikjuafurðir í Grindavík. Framleiðslugeta er 3.000 tonn af bleikju í 50.000 rúmmetra eldisrými.

Bleikjueldi
Eldisstöð Íslandslax, að Núpum í Ölfusi er hönnuð til eldis bleikju frá hrognum upp í u.þ.b 70-100 g seiði og er framleiðslugetan um 3 milljón seiði á ári. Við klakið og eldið eru notuð jarðvarmi og heitt vatn sem er dælt upp úr borholum á svæðinu. Frá Núpum eru seiðin flutt til einnar af þremur landeldisstöðvum Oddeyrar. Íslandsbleikja er með starfstöðvar á Vatnsleysu og Stað á Reykjanesi og í Silfurstjörnunni í Öxarfirði. Allar þrjár stöðvarnar bjóða bestu fáanlegu aðstæður fyrir fiskeldi, þar sem ísöltu vatni, sem hefur síast í gegn um hraunið, er dælt beint upp úr jörðinni og í eldisker stöðvanna. Samanlögð framleiðslugeta þessa þriggja stöðva er um 4.500 tonn á ári. Í framleiðsluferlinu hjá öllum eldisstöðvunum er fylgst með umhverfisþáttum s.s. súrefni, seltumagni, þéttleika og hitastigi, þeir aðlagaðir og stilltir til þess að tryggja bestu mögulegu uppeldisaðstæður á hverju vaxtarstigi fisksins. Fóðurdreifing er sjálfvirk allan sólarhringinn og með fullkomnu myndavélakerfi er hægt að fylgjast með henni, hvaðan sem er. Frá byrjun fóðrunar til slátrunar bleikjunar er eingöngu notast við fóður frá Fóðurverksmiðjunni Laxá hf. Fiskeldisfóður frá Laxá inniheldur hágæða hráefni unnið úr sjálfbærum fiskstofnum við Íslandsstrendur. Prótein úr fiski er um 55% af heildarmagni próteins í fóðrinu og eingöngu er notuð olía úr fiski í fóðrið. Ekki eru notuð önnur dýraprótein og engum lyfjum er bætt í fóðrið. Notkun litarefnanna Astaxanthin og Cantaxanthin er samræmd og í samræmi við reglur Evrópusambandsins. Þegar bleikjan hefur náð sláturstærð er hún flutt lifandi til Grindavíkur í slátrun og framleiðslu. Í nýrri aðstöðu sem tekin var í notkun á árinu 2007 og með fjárfestingum í tækjabúnaði og þekkingu eru framleiddar gæða afurðir, ferskur og frosinn fiskur, heill eða í bitum, sem uppfylla ýtrustu kröfur markaðarins. Við þessar góðu aðstæður eru einnig miklir möguleikar á því að þróa nýjar afurðir í samvinnu við okkar fjölmörgu viðskiptavini um allan heim.