Allri fiskeldisstarfsemi á vegum Samherja hf. er stýrt gegnum Oddeyri ehf. sem er í 100% eigu Samherja hf. Flestir eignarhlutir sem tengjast fiskeldi eru í eigu Oddeyrar eða dótturfélaga Oddeyrar og er starfsemi víðsvegar um Ísland á vegum félagsins. Íslandsbleikja er stærsti framleiðandi á bleikju í heiminum og er 100% í eigu Oddeyrar gegnum Íslandslax. Íslandsbleikja er félag sem sérhæfir sig í framleiðslu á bleikju, allt frá hrognum til fullunninna flaka, og er félagið með starfsstöðvar á Stað í Grindavík, Vatnsleysu á Reykjanesi, Öxnalæk í Ölfusi auk fullkominnar vinnslu fyrir bleikjuafurðir í Grindavík. Íslandslax er tæplega 100% í eigu Oddeyrar og rekur seiðastöð á Núpum í Ölfusi auk þess sem félagið hefur leyfi til laxeldis og þorskeldis í Eyjafirði. Silfurstjarnan er 70% í eigu Oddeyrar, með eldi á landi í Öxarfirði. Sérhæfing Silfurstjörnunnar er eldi flatfiska, s.s. sandhverfu, bleikju og lúðu. Sláturhús er rekið á vegum Silfurstjörnunnar. Oddeyri á einnig 17% hlut í Fiskey, sem sérhæfir sig í framleiðslu á lúðuseiðum fyrir alþjóðlegan markað. Fiskey hefur um árabil verið stærsti framleiðandi á lúðuseiðum í heimi.

